/

Um NFHB

NEMENDAFÉLAG HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

Um NFHB.

Nemendafélagið er hagsmunafélag allra nemenda er stunda nám við Háskólann á Bifröst. Markmið félagsins er skýrt en það er að standa vörð um hagsmuni nemenda og vinna að bættum hag þeirra í námi og leik.

Hagsmunir nemenda

Stjórn nemendafélagsins hvetur nemendur til þess að kynna sér í þaula handbók nemenda en þar er að finna mikilvægar upplýsingar um allt er snertir nám og kennslu, verklag og reglur. Stjórn nemendafélagsins er í stöðugu og góðu samstarfi við skólastjórnendur og getur þannig vakið athygli á þeim málum er varða hagsmuni allra nemenda við skólann.

Í stjórn nemendafélagsins er hagsmunafulltrúi nemenda en netfang hagsmunafulltrúa er [email protected]. Nemendur geta leitað beint til hans eða beint fyrirspurnum á [email protected].

Félagslíf og viðburðir

Í fjarnámsskóla er mikilvægt að bjóða upp á gott félagslíf. Nemendafélagið skipuleggur allskyns viðburði fyrir nemendur, bæði á staðlotum og annarsstaðar. Stærsti viðburður skólaársins er árshátíðin en hún er haldin á vorönn ár hvert. Þá stendur félagið fyrir vísindaferðum ásamt því að undirfélögin, Justitia, Merkúr og Verus skipuleggja einnig sína eigin viðburði.

Tilgangurinn er ávallt að efla tengslanet nemenda og þekkingu, ásamt því að vera okkar góða skóla ávallt til sóma.

Persónuvernd

Nemendafélagið hefur sett sér persónuverndarstefnu.

NFHB í hnotskurn

Hagsmunafulltrúi nemenda

[email protected]

Undirfélög

Justitia, Merkúr og Verus

Stærsti viðburður ársins

Árshátíðin, haldin á vorönn ár hvert

Dyr okkar standa ávallt opnar

Það er von okkar, sem störfum í stjórn nemendafélagsins hverju sinni, að nemendur taki fullan þátt í þeim viðburðum sem nemendafélagið og undirfélög þess bjóða uppá. Þá standa dyr okkar ávallt opnar ef nemendur vilja heyra í okkur.

Senda tölvupóst ↗

NEMENDAFÉLAG HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

Afslættir fyrir nemendur

Nemendaskírteinið þitt veitir þér aðgang að ýmsum fríðindum í gegnum Nova appið.

Hvar finn ég afslættina?

Opnaðu Nova appið og skoðaðu fríðindin sem fylgja nemendaskírteininu þínu. Þar sérðu hvaða tilboð eru í boði hverju sinni.

Hvað er í boði?

Fríðindin geta breyst og nýjustu upplýsingarnar eru alltaf í Nova appinu.

Þarftu aðstoð?

Ef þú lendir í vandræðum með nemendaskírteinið eða hefur spurningar um afslættina, endilega hafðu samband á [email protected].

Senda tölvupóst ↗