/

/

Allar stjórnir

NFHB OG AÐILDARFÉLÖG

Allar stjórnir

Kynntu þér fólkið sem stendur að félagsstarfi NFHB og aðildarfélaganna.

Stjórn NFHB

Starfsárið 2026–2027

  • Forseti

    Kristján Óli Níels Sigmundsson

    Um stöðuna

    Hefur yfirumsjón með starfsemi NFHB, stýrir stjórnarfundum og kemur fram fyrir hönd félagsins. Forseti situr jafnframt í háskólaráði og er einn helsti fulltrúi nemenda gagnvart háskólanum og öðrum samtökum.

  • Varaforseti/ritari

    Eyþór Daði Eyþórsson

    Um stöðuna

    Er forseta til aðstoðar og tekur við störfum hans í forföllum. Sér jafnframt um fundargerðir, heldur utan um gögn stjórnar og tryggir að lög félagsins séu uppfærð og aðgengileg nemendum.

  • Fjármálastjóri

    Lea Steinþórsdóttir

    Um stöðuna

    Heldur utan um fjármál NFHB, þar á meðal bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga. Sér til þess að fjármunum félagsins sé ráðstafað á ábyrgan hátt og að stjórn hafi góða yfirsýn yfir fjárhagsstöðuna.

  • Viðburða- og samskiptastjóri

    Tómas Andri Arnarsson

    Grunnnemi í skapandi greinum

    Um mig

    28 ára Strandamaður með óeðlilega mörg áhugamál og alltof fáar klukkustundir í sólarhringnum. Ég elska tónlist, viðburðahald og að fá hugmyndir sem enda yfirleitt í aaallt of stórum verkefnum.

    Um stöðuna

    Skipuleggur viðburði NFHB og sér um kynningarstarf, samfélagsmiðla og heimasíðu félagsins. Heldur utan um samstarf við fyrirtæki, nemendaafslætti og stúdentaskírteini ásamt því að tryggja gott upplýsingaflæði til nemenda.

  • Hagsmunafulltrúi

    Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir

    Um stöðuna

    Gætir hagsmuna og réttinda nemenda gagnvart háskólanum. Aðstoðar nemendur með ábendingar og kvartanir, vinnur að bættu námsumhverfi og situr í háskólaráði ásamt því að leiða gæðastarf NFHB.

  • Nýnemafulltrúi

    Bríet Dalla Gunnarsdóttir

    Um stöðuna

    Er tengiliður nýnema við stjórn NFHB. Kemur sjónarmiðum og þörfum nemenda á fyrsta ári á framfæri og hjálpar þeim að koma málum sínum í réttan farveg.

NEMENDAFÉLAG HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

Afslættir fyrir nemendur

Nemendaskírteinið þitt veitir þér aðgang að ýmsum fríðindum í gegnum Nova appið.

Hvar finn ég afslættina?

Opnaðu Nova appið og skoðaðu fríðindin sem fylgja nemendaskírteininu þínu. Þar sérðu hvaða tilboð eru í boði hverju sinni.

Hvað er í boði?

Fríðindin geta breyst og nýjustu upplýsingarnar eru alltaf í Nova appinu.

Þarftu aðstoð?

Ef þú lendir í vandræðum með nemendaskírteinið eða hefur spurningar um afslættina, endilega hafðu samband á [email protected].

Senda tölvupóst ↗