Hagsmunafulltrúi NFHB vinnur að hagsmunamálum nemenda og gæðamálum náms við Háskólann á Bifröst. Hér sérðu hver gegnir stöðunni og hvernig þú hefur samband.
Netfangið fylgir stöðunni, svo erindið berst alltaf þeim sem gegnir henni hverju sinni.
Hvað gerir hagsmunafulltrúi?
Hagsmunafulltrúi vinnur að hagsmunamálum nemenda og gæðamálum náms við Háskólann á Bifröst og hefur frumkvæði að úrbótum, í samvinnu við kennslusvið eða einstakar deildir. Nemendur geta leitað beint til hagsmunafulltrúa með mál sem varða námið. Hagsmunafulltrúi situr í háskólaráði Háskólans á Bifröst, í gæðanefnd og í fulltrúaráði Landssamtaka íslenskra stúdenta.
Nemendaskírteinið þitt veitir þér aðgang að ýmsum fríðindum í gegnum Nova appið.
Hvar finn ég afslættina?
Opnaðu Nova appið, farðu í Veskið og ýttu á 'Nemendaskírteini Bifröst'. Þar geturðu skoðað fríðindin sem fylgja nemendaskírteininu þínu. Þar sérðu hvaða tilboð eru í boði hverju sinni.
Hvað er í boði?
Fríðindin geta breyst og nýjustu upplýsingarnar eru alltaf í Nova appinu.
Þarftu aðstoð?
Ef þú lendir í vandræðum með nemendaskírteinið eða hefur spurningar um afslættina, endilega hafðu samband á [email protected].