Vegna alþjóðlegrar bilunar hjá Microsoft eru nú truflanir á Outlook-tölvupóstþjónustunni og Microsoft Teams. Nemendur geta því átt í erfiðleikum með að senda og taka á móti tölvupósti eða nota Teams.
Ef þú hefur sent póst eða skilaboð og ekki fengið svar hafa skilaboðin líklega ekki borist vegna bilunarinnar.
Unnið er að lausn en ekki liggur fyrir hvenær þjónustan kemst í eðlilegt horf. Bilunin er alþjóðleg og ekki bundin við Háskólann á Bifröst.
Nánari upplýsingar má finna í frétt RÚV: Bilun hjá Microsoft
Tilkynning frá Upplýsingatæknisviði Háskólans á Bifröst. Við uppfærum þessa frétt þegar þjónustan er komin aftur í lag.